Vika
liðin af sumarfríinu mínu og ætla ég að njóta þess í hástert
að vera í síðasta langa fríinu mínu áður en ég fer í Kennó.
Ég er farinn að hlakka til þessa, að fara og læra. Það eru 9
ár síðan ég var síðast í skóla. En hvað um
það..
Það eru allir
hér á heimilinu í startholum fyrir flutning af Hvanneyri. Pabbi,
sem er að fara í nám til Óðinsvé í Danmörku flýgur til Danaveldis
n.k. miðvikudagsmorgun ásamt mömmu og Óla Magga en þau ætla bara að
dvelja þar í 10 daga svo koma þau heim og mamma dvelur hér á landi
í aðeins 5 daga og svo er hún farin til Svíþjóðar ásamt Rönku,
Sigrúnu og Dössa og krökkunum, Kristjönu og Rakel Ýr til Gyðu
Margrétar sem býr í Luleá. Hún eignaðist stúlku þann 22 júlí sl.
Til Hamingju með
dótturina.
Þannig að það
verður ágætis hvíld þangað til ég byrja í
Kennó.
Aftur á móti hefur
þessi helgi sem er að líða verið hevý góð og á ég
www.youtube.comað þakka þar sem ég hef verið í hálfgerðri
nostalgíu hvað varðar gamalt myndefni og toppurinn var
TRANSFORMERS teiknimyndaþættirnir sem voru sýndir á Stöð 2 fyrir
um tuttugu árum. Þeir voru sýndir strax á eftir “Með afa” á
laugardagsmorgnum. Og það var áður en Stöð 2 eyðilagði
barnadagskrá sína með ruslþáttum og
leiðindarmyndum.Fyrir ykkur sem ekki vitið hvað
Transformers er, þá eru þetta vélmenni sem komu frá plánetu þar
sem vélmenni réðu ríkjum. Eins og alltaf er þetta barátta á
milli góðs og ills.Autobots eru góðu gæjarnir en
Decepticons eru vondu. Ég skora á Stöð 2 að endursýna þessa
gömlu þætti. Barnadagskráin í dag, bæði hjá Rúv og Stöð 2 er
hryllileg. Flest af þessum þáttum koma fram við krakka eins og
þeir eru hálfvitar. Ég vaknaði oft með litlu systkinum mínum
þegar barnaefnið byrjaði og horfði á “Með afa” þegar hann var
einn og hálfur tími að lengd. Þættir eins og Tao Tao,
Dipódóarnir og Glóarnir og svo auðvitað Transformer, þetta voru
sko þættir sem maður ólst upp
við.
Hver man svo
ekki eftir Transformers köllunum sem var það vinsælasta sem maður
átti og ég man að ég, Konni og Ingó frændi áttum helling af
svoleiðis og lékum okkur alltaf með
Transformers. Those were the good old
days.
Ég
skora á RÚV að hefja sýningar á þætti sem heitir ,,Mock the
Week”. Þetta er eins konar “Þetta helst” eins og Hildur Helga
stjórnaði í den. En það sem er skemmtilegast við þessa þætti að þar
er gert gersamlegt stólpagrín að fréttum
vikunnar. 6 stand up grínistar koma
saman í hverri viku og gera grín að fréttum.
Fyndnir, fyndnir,
fyndnir.
Ég þakka
YouTube fyrir að vera til.
Það
er komin ný skoðanakönnun
Loksins
Endilega takið
þátt
Feitilíus
kveður